Prentvæn útgáfa
Skoða sem PDF skjal

Er þín vefsíða örugg?

Vefhýsingar Geymis hafa nú uppá að bjóða öfluga afritunar töku fyrir alla vefhýsingar pakka.  Afritun er tekin af öllum vefsvæðum Geymis tvisvar á sólahring og eru afrit geymd í 14 daga í senn. Komi upp vandamál þá er hægt að hafa aðgang að afriti í gegnum Cpanel stjórnborðið, eða þá hafa beint samband við Geymi.
Prentvæn útgáfa
Skoða sem PDF skjal

Að skrá lén

Skráning á íslensku léni fer fram hjá Internet á Íslandi (ISNIC). Þeir sjá um skráningu á íslenskum rótarlénum (.IS) og hafa þeir árgjaldið 7.982 kr.- sem er innheimt af isnic. Megin regla þeirra við skráningu er sú að fyrstur kemur fyrstur fær og því er ekki hægt að taka frá hugmynd að léni. Einnig ber að athuga að nú er möguleiki á að skrá lén með sér íslenskum bókstöfum og tekur isnic 700 kr.- á ári fyrir það.

Við aðstoðum okkar kúnna ef upp koma einhver vandamál við skráningu eða þegar tengja skal lénið við vefhýsinguna.

Prentvæn útgáfa
Skoða sem PDF skjal

Installatron

Nú hefur verið skipt út Fantastico möguleikanum, en nýr og öflugri möguleiki kominn inn í stað þess og kallast hann Installatron. Ástæða skiptana er að uppfærslur frá framleiðanda Fantastico eru ekki nógu tíðar og getur það skapað öryggis hættur ef ekki er reynt að halda í nýjustu útgáfur af þeim vefkerfum sem í boði eru.

Með Installatron er möguleiki að:

  • Setja upp öll helstu vefkerfi á einfaldan hátt hvar sem er á vefsvæðið.
  • Þú getur séð lista yfir öll kerfi sem þú hefur sett upp, hlekkur á vefsíðu og stjórnborð kerfis. Skoðað skrár,gagnagrunn og ýmsar upplýsingar um uppsett kerfi.
  • Möguleiki á að taka afrit af uppsettu forriti hvenær sem er og setja inn áður tekið afrit.
  • Fá sendan tölvupóst þegar ný útgáfa af uppsettu forriti er til.
  • Notfæra sér uppfærslu Wizard til að setja inn uppfærslu á uppsettu forriti.
  • Þegar ekki er lengur þörf á kerfi þá er hægt að henda því út örugglega með hjálp Installatron.
Prentvæn útgáfa
Skoða sem PDF skjal

Barnavörur.is

Perlur & Gjafavörur hafa nú valið Geymir.net sem þjónustuaðila.

Perlur og Gjafavörur reka tvær vefverslanir perlur.is, sem selur hluti til skartgripagerðar og einnig barnavörur.is ,sem sérhæfir sig í taubleium og öðrum barnavörum.

Geymir.is sá um að flytja vefsíðurnar frá öðrum þjónustuaðila. Síðurnar eru smíðaðar í Joomla, og gekk flutningurinn vel. Geymir getur aðstoðað við flutning á netföngum og vefsíðu sé þess óskað.

Prentvæn útgáfa
Skoða sem PDF skjal

Dagleg afritun gagnagrunns

Með Cron manager í Cpanel er möguleiki á að taka daglega afritun af gagnagrunni, en í flestum tilvikum er það aðalega gagnagrunnur sem breytist eftir að síða hefur verið standsett. Hafir þú áhuga á að fá daglega afritun gagnagrunns þá skaltu hafa samband við okkur og við aðstoðum við uppsetningu á skriftu í Cron sem sér um það.

 Þeir sem hafa aðgang að ftp þjón geta þá einnig sent sjálfvirkt afrit beint inná hann.